Um okkur
Víetnamska ehf. býður upp á sérhæfð túlka- og þýðingaþjónustu á víetnömsku.
Hjá fyrirtækinu starfa reyndir túlkar með margra ára reynslu af túlkun á ólíkum sviðum, þar á meðal heilbrigðis-, skóla-, velferðar- og réttarsviði.
Víetnamska ehf. er aðili að rammasamningi Ríkiskaupa um túlka- og þýðingaþjónustu.
Hjá Víetnamska ehf. byggjum við þjónustu okkar á fagmennsku, áreiðanleika, trausti, trúnaði og stundvísi. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og góða þjónustu við alla viðskiptavini okkar.

Jana Thuy Helgadóttir
Jana er einn af stofnendum Víetnamska ehf. Jana er tvítyngd og hefur búið alla sína tíð á Íslandi. Hún hefur starfað við túlkun síðan 2006 og hefur á þeim tíma aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar á sviði túlkunar.
Fagmennska, áreiðanleiki og góð samskiptahæfni einkenna þjónustu hennar.
Í gegnum árin hefur Jana átt í samstarfi við fjölmarga einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Hún hefur meðal annars starfað sem túlkur fyrir InterCultural, Túlkaþjónustu slf. og Asetur ehf. um árabil.
Jana hefur mikla reynslu af túlkun í fjölbreyttum og oft krefjandi verkefnum, bæði í einkamálum og opinberum málum. Hún hefur túlkað á fundum með skjólstæðingum, í dómsölum, á matsfundum, á fundum með læknum og öðrum fagaðilum, í skýrslutökum hjá lögreglu og fyrir einstaklinga sem afplána fangelsisdóma. Reynslan hefur gert hana vel í stakk búna til að vinna við viðkvæmar og krefjandi aðstæður af fagmennsku og trúnaði.
Hlutverk Jönu innan fyrirtækisins eru að sinna túlka- og þýðingaverkefnum. Tryggja gæði og fagmennsku í þeirri þjónustu sem fyrirtækið veitir.
Í gegnum tíðina hefur Jana tekið virkan þátt í félagsstarfi Víetnama á Íslandi. Hún var meðal stofnenda Félags Víetnama á Íslandi og sat í stjórn félagsins um nokkurra ára skeið. Enn í dag hefur hún sterkum tengslum við víetnamska samfélagið á Íslandi, sem nýtist henni vel í starfi sínu sem túlkur og tengiliður milli ólíkra menningarheima.
Ellen Hong Van Truong
Ellen fæddist í Víetnam en ólst upp á Íslandi. Hún talar og skrifar bæði íslensku og víetnömsku reiprennandi og þekkir því vel til beggja menningarheima. Frá árinu 2008 hefur Ellen starfað sem túlkur hjá meðal annars, Asetur ehf, Intercultural Ísland, Jafnréttishús og Túlkaþjónustu slf.
Ellen hefur jafnframt verið virk í félags- og samfélagsmálum og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að auknum skilningi og þátttöku fólks af erlendum uppruna á Íslandi. Hún hefur meðal annars setið í stjórn Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi (Women in Iceland) og Félags Víetnama á Íslandi. Nýverið sinnti hún einnig hlutverki Menningarsendiherra Víetnama á Íslandi, þar sem hún lagði sitt af mörkum til að efla menningarleg tengsl og gagnkvæman skilning milli landanna.
Auk reynslu sinnar af túlkun, ráðgjöf og félagsstörfum hefur Ellen einnig rekið eigið fyrirtæki um árabil. Í gegnum reksturinn hefur hún öðlast víðtæka reynslu af stjórnun, skipulagningu og daglegum rekstri fyrirtækja. Fagleg, persónuleg og áreiðanleg þjónusta hefur ávallt verið leiðarljósi í störfum Ellenar.
Innan fyrirtækisins ber Ellen ábyrgð á bókanir, samskiptum við viðskiptavini og daglegu skrifstofuhaldi. Hún sér jafnframt um utanumhald skjala og annarra rekstrartengdra verkefna. Með skipulögðum vinnubrögð og áratuga reynslu tryggir hún skilvirkan rekstur og góða þjónustu við viðskiptavina.
_edited_edited.png)